Safety Gate-hraðviðvörunarkerfið starfar í samræmi við reglugerðina um öryggi vöru (GPSR) sem kveður á um að allar vörur sem settar eru á evrópskan markað eigi að vera öruggar. Safety Gate-hraðviðvörunarkerfið er mikilvæg stoð til að ná því markmiði.

Hraðviðvörunarkerfið fyrir hættulegar vörur sem ekki eru matvæli var upphaflega búið til út frá almennu tilskipuninni um vöruöryggi sem var samþykkt 2001. Frá árinu 2003 hafa landsyfirvöld í öllu Evrópubandalaginu og í EES-löndum tekið þátt í kerfinu. GPSR-reglugerðin krefst þess að aðildarríki setji inn upplýsingar í Safety Gate-hraðviðvörunarkerfið um þær ráðstafanir sem hafa verið gerðar gagnvart hættulegum vörum sem fundist hafa á innlendum mörkuðum sem fela í sér alvarlega áhættu. Einnig að þau tilkynni um eftirfylgnisaðgerðir eða frekari niðurstöður rannsókna. Aðildarríki geta einnig upplýst í kerfinu um leiðréttingaraðgerðir í tengslum við vörur sem bera með sér minni alvarlega áhættu.

Landsyfirvöld geta sett inn viðvaranir sjö daga vikunnar allan ársins hring og er upplýsingunum dreift sjálfkrafa til allra landsyfirvalda þátttökulandanna. Samantekin útgáfa af viðvörunum er birt á Safety Gate-gáttinni til að upplýsingar verði fljótt aðgengilegar almenningi og vélþýddar sjálfkrafa úr ensku á öll tungumál landanna sem taka þátt í skipti á upplýsingum, auk arabísku og úkraínsku.

Hvert landsyfirvald mun svo kanna á sínum innlendu mörkuðum hvort varan er fáanleg þar til sölu (í hefðbundnum verslunum eða á netinu) og ef svo er, gera frekari ráðstafanir í sínu eigin landi.

Safety Gate-hraðviðvörunarkerfinu er stýrt af framkvæmdastjórn ESB. Landsyfirvöld geta hvenær sem er beðið um uppfærslur á þeim upplýsingum sem þau hafa sett í kerfið. Það getur verið um að ræða breytingu á lýsingu á áhættu vöru eða afturköllun viðvörunar. Aðeins landsyfirvöld geta krafist þessara breytinga.

Safety Gate-hraðviðvörunarkerfið er hornsteinn að vernd neytenda gagnvart hættulegum vörum og stuðlar að skjótri afturköllun vara af ESB-markaði.

Fara á toppinn